Það jafnast ekkert á við gott nöldur..

jeje..

16.02.2008 23:54:53 / A.Hansen

Nýtt upphaf





www.noldur.com



Tjékk itt át


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 11:50:19 / EddaKarls

HEY!!! Kanína;)

Hvað er að frétta?  Ætlar enginn á Sálartónleikana hina miklu 14 mars?  Held að hver fari að verða seinastur að tryggja sér miða, allaveganna er uppselt í stúku! 

Björk?? anyone?

Stóra syss allaveganna alveg að tapa sér í gleðinni yfir þessu og ég held ég tapi mér bara með henni.  Enda ekki oft sem þeir spila gömlu góðu lögin (en þeir eru víst búnir að lofa sveitaballastemningu)

Anna varst þú ekki að tala um að þig langaði á sveitaball, ha? Þær sem hafa áhuga talið við mig í dag, ætla ekki að bíða mikið lengur með að kaupa miða.

Nú er ég farin;)

yfir og út 

Edda 

 ps: ég býst við að heyra frá Björk, Önnu og Írenu.  Ef ekki valdið þið mér miklum vonbrigðum sem sálarsjúkum,dansþyrstum og sveitaballaóðum vinkonum mínum;).  Hinar eiga svo líka að sjálfsögðu að láta heyra í sér, því fleiri því betra!


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 10:56:03 / Hjördís

Halló sætu stelpur sem ég er ekki búin að sjá í ár og aldir!!!

Bara að láta ykkur vita af fínu ,,snyrtistofunni" minni sem er komin upp í Baugöldunni :) Ef þið viljið neglur eða brúnkusprautun þá vitiði við hverja þið eigið að tala við ;)

Hlakka hrikalega til að sjá ykkur á blóti um helgina! :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 16:10:18 / A.Hansen

Hallóhalló! (Ölmundur skrifar)

Vildi bara benda ykkur á að ég hef sett inn á mæspeis myndir m.a. frá áramótunum sem þið hefðuð ef til vill gaman af að skoða:)

 

Sjáumst kannski bara á morgun! er ekki hittingur??:D

 

Lovjú longtæm

Ölmundur 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 14:47:01 / UnnurLilja

fyrsti febrúar

góðan daginn dúllurnar mínar

þið eruð krappíeinalbloggarar þannig að ég tek þetta í minar hendur.


dagar mínir á elsku reyðarfirði líða ljúflega og það er alltaf jafn gaman þar. aldís kemur svo að sörvera ofan í mig mat þegar hún losnar í kartöflsláturhúsinu..þá verður enn þá skemmtilegra:)


nú er ég hinsvegar heima í brjáluðum framkvæmdum, verið er að skipta um eldhúsinnréttingu sem þýðir það að uppþvottavélin er inní þvottó, eldavélin frammi á gangi og leirtauið inn í stofu, fyrir treggáfaða manneskju eins og mig er þetta ofsalega erfitt þar sem ég gleymi í sífellu hvar allt er.


ég fór útáðan og dró jeppann í gang á trallanum. ég hélt í alvörunni að blóð mitt myndi frosna í æðunum og ég kæmist ekki lifandi frá þessu. þvílíkur og annar eins kuldi, þegar ég dró inn andann þá frosnaði horið í nösunum sko. þannig að í staðinn fyrir að deyja meira ákvað ég að gera það sem ég hefði átt að gera fyrir lifandis löngu, taka til í herberginu mínu. fann þarna ýmislegt skemmtilegt undir fatahrúgunni, svo sem SKÆRbleikt gaddaarmband frá sokkabandsárum mínum, geisladiskinn Barnadansar sem inniheldur ma Óla Skans og svo fann ég fullt af fötum sem ég vissi ekki að ég ætti ennþá. það er miklu skemmtilegra að taka til sjaldnar, þá er það skemmtilegra þegar verðurloksins að því. mottó mitt hér framvegis.


í kvöld ætla ég að vera á hellu með aldísi þannig að hringið í mig ef þið eruð á svæðinu! veit að hjördís og ösp eru hér allavega


jæja, ég ætla aðfara að éta fitulausar rjómabollur ala mútta og knúsa sætasta strák í öllum heiminum.


veriði sælar


ps. má ég gistaá hringó á morgun?



» 8 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 09:37:05 / UnnurLilja

pungur

Bara að minna ykkur á að borga mér afmælisgjöfina hennar hönsu!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 18:07:32 / Harpa

Jújújújú þið sáuð rétt hér að ofan.... engin önnur en MS SHARP hér á ferð galvösk og vellifandi!!

Ég er stödd í byggðum eins og er, nýtti mér tækifærið og kíkti í tölvuna hjá múttu! Hins vegar gæti stafsetningin orðið eitthvað bjöguð hjá mér þar sem hann karl faðir minn gaf móður minni nýtt lyklaborð í jólagjöf sem er svo speisað að annað eins hefur ekki sést hér um slóðir!! Það er svona upp í miðjunni og bil á milli takkanna einhvernveginn í miðjunni þannig maður einhvern veginn verður bara liggur við að læra fingrasetninguna upp á nýtt allt á svo skrýtnum stöðum. Mín ályktun er þó sú að einlægur ásetningur hafi staðið að baki þessu vali hjá karli þar sem ég held að ég geti nú gert mér í hugarlund hvernig það er hjá honum þegar hann er að reyna pikka!! Pabbi I feel your pain :lol:

En nóg um það!! Ég er sem sagt enn á lífi fyrir þá sem hafa verið að velta vöngum yfir þeim hlutum, kannski skiljanlega! En ég eyði bara flestum mínum stundum hjá aðal samkeppnisaðila ÖNNUOH, smáralindinni í Líf og List. Ef ég frétti að þið hafið farið í kringlunna og hitt önnu þá verð ég sko BRJÁLUÐ :klikk: ég meina ég býð upp á subway mér við hlið og baby sam á hinni hliðinni!! Toppiði það!!! ;) Anna hvað býður þú upp á haaaaa bara fjölbreytni skóbúðir á báðum hliðum!! :lol: Neinei ég verð ekkert fúl. Lofa :o En já meira af mér, við búum semsagt enn í ölfusborgum í rómó stemmingu sem fer nú að verða soldið þreytt! Ekki það að rómantíkin lifir heldur bara baby eldhús, fataskápaleysi, kerti og spil, stórbrotið val á milli stöð 1 og skjás 1!! Ef þið viljið vita eitthvað um endursýningar á skjá 1 bara komið til mín, og ef þið eruð ekki með stöð 2 og viljið vita hverju þið eruð að missa af bara taliði við mig!! I know it all :evil: En þetta fer nú vonandi að lagast, nenni ekki að skemmta ykkur með því að segja ykkur allar pælingarnar sem hafa verið í gangi um það hvar við höfum hugsað okkur að koma okkur fyrir en nýjasta er sem sagt sú að fara í skítugu reykjavík!! Þannig borgarpíur þið getið farið að undirbúa ykkur undir stórlega óvæntar heimsóknir á næstunni!! :D ég er svo leiðinleg að ég nenni aldrei að vera lengur í bænum þegar ég búin að vinna :^) En aldrei að vita þetta gæti breyst á morgun þannig ekkert of stórar væntingar ég veit samt ykkur langar í mig :lol:

En jæja, nóg af rugli.... held ég sé að fá hint hérna að fara hætta, ljósin blikka, rafmagnið að fara af öruglega bara og ég að skrifa þessa færlsu í annað fokking skiptið :evil: róleg harpa róleg :klikk: En já tusind tusind tak elsku Ösp mín fyrir extreme makeoverið í gær, (þú fékkst líka að hitta sigga, lucky you ;) ég var sko LANNNNNNNGGGGGGGGGG flottust í gær ;)ég valtaði yfir þær allar í framan :lol: var semsagt á selfossblótinu í gær, tékka á því hvort þetta lið kynni eitthvað að skemmta sér! Það féll samt eiginlega á prófinu.... neinei þetta var ágætt! Held samt að ég hafi verið ein á móti 799 í drykkjunni :haha:

Hlakka svo bara til á blótinu hér! Ég vil vita hverjar eru að fara.... og hvort við ætlum að vera á borði eða hvort allar séu hjá ma&pa ;)

                                            Later..... MS Sharp kveður með sárindi í hálsi :whut: :)


» 18 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 12:05:38 / A.Hansen

Aaaaallll byyyyy myyyyyyseeeeeeeelf.....

 

 

Engar áhyggjur elskurnar mínar, ég er ekki svona svakalega einmana:) ég er bara alveg að verða geðveik á þessari lyftutónlist í þessari blessuðu Kringlu... greinilega ekkert verið að splæsa í fleiri en einn Mix-Disk, við erum bara með sömu gæðatónlistina á repeat allan liðlangan daginn... Hittarar á borð við All by myself, When a man loves a woman, Fields of gold og okkar ástkæra Sjúbbídú eru meðal laga á listanum góða... og ég er ekki að grínast þessi playlisti er spilaður 5x á dag! Lovely!:haha:

Og ég þurfti sko að mæta klukka ÁTTA í morgun takk fyrir og góðan daginn, heimsókn niður í Tæknivörur, fyrirtækið sem flytur inn Sony Ericsson, Samsung og Motorola, FYRIR vinnu... voru að sýna okkur hvaða nýjungar eru að koma, td. eins og Samsung Armani sími og Adidas geggjaður Sportsími... spennandi ha;) en það er bara kaffikaffikaffi til að komast í gegnum daginn, svo erum við Alda Marín að fara á Jesus Christ Superstar í kvöld vúhúúúú.. gaman gaman

 

Annars var ég líka orðin nett geðveik á partýfærslunni hér að neðan, búin að lesa hana asskoti oft enda komin VIKA síðan hún var sett inn!! Enginn sem nennir að blogga þessa dagana:)

 En takk fyrir síðast krúttlurnar mínar og takk fyrir mig, þið getið farið að mæta í safasmökkun anytime núna, búin að glugga aðeins í bókina og þar eru nú ýmsir góðir drykkir sem verða prófaðir fljótlega!;) Ég skemmti mér konunglega á laugardaginn, bærinn reyndar eitthvað mis, en gaman heima og það er nú fyrir öllu... bókað mál að þetta verður ekki síðasta teitið hjá okkur..

 Sambúðin á Hringó gengur annars vel enn sem komið er allavega, við erum líka afskaplega lítið heima, sjaldan sem það hittist á að við erum þarna allar 3 á sama tíma.. En inn á milli gerist það auðvitað og þá höfum við það náðugt og skellum Footloose í tækið til að dansa okkur inn í svefninn nú eða höfum "Sexytime":) (Sex and the city maraþon fyrir þá sem ekki skilja:haha:)

Ein góð af Beikoninu úr Footloose hahaha

 

Ohh þær eru svo fabulous ;)

EM í handbolta á hug meirihluta vinahópsins þessa dagana, ég hef nú haft annað augað á þessu en skipulegg daginn nú ekki kringum leikina eins og sumir hehehe... En þetta var flott hjá þeim í gær, nú er bara að vinna Spanjólana í dag!! :) Taka þá í þurran analinn eins og einhverjir myndu kannski orða það *hóst* Unnur og Ösp *hóst*;) hahaha...

 Helgin mín er alveg óráðin, frí á sunnudag samt ef einhver hefur áhuga á að gera eitthvað skemmtilegt með mér...

 Jeje en ég hef ekki meira að segja í bili, ætla að fara að vinna eitthvað hérna.. vaktafrí á morgun!!! :)

 

Later homegirls...

*ANNA OH *

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 16:54:39 / A.Hansen

!!!!MATARBOÐ - PARTEI!!!!

ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ!!!!

 

MATARBOÐ-INNFLUTNINGS-AFMÆLISTEITI

 

VERÐUR HALDIÐ Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ Á HRINGÓ EN EKKI HVAR

 

MUNU ANNAOH, ALDAMARÍN OG ÖSP ROOMIES REIÐA FRAM DÝRINDIS KRÆSINGAR SEM VERÐA BORNAR Á BORÐ STUNDVÍSLEGA KLUKKAN ÁTTA

 

 MÆTING EKKI MIKIÐ SEINNA EN HÁLF ÁTTA EN AUÐVITAÐ MEGIÐ ÞIÐ KOMA FYRR:D

 

Þær sem ætla að mæta látið okkur vita svo við vitum hvað við þurfum að hrista mikinn mat framúr erminni:D

 

Sjáumst hressar á laugardaginn

The roomies 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 01:04:38 / Birna

anna hilton?




 

til ham m/ 22 ára afm skutla

your BFF's


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:24:49 / Birna

party í barbie íb?

? um að halda handb party í barbieíbúðinni á fim

lítið tv

fáir stólar

en þeim mun betri stemning

sætapantanir í síma 8665292

ath bara 7-9 sæti laus í forsölu auk rúms en það er nóg gólfpláss

welcome

bósk


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 04:11:06 / Birna

hhhh, hhhh, hhhhaa, haaaandbolti?

Það er kominn janúar, mánuður skammdegisþunglyndis, sjálfblekkinga, vísareiknings og stórmóta í handbolta. Í þetta skipti er ég hvorki að skrifa um þunglyndi né sjálfsblekkingar eins og fólk hefði kannski haldið heldur langaði mig að athuga stemningu fyrir handboltaleik, upphitunarleik fyrir EM. Sá leikur á sér stað í Höllinni kl 19:30 nk mánudag þar sem við munum taka á móti Tékkum. Þetta er síðasti leikurinn fyrir mótið og persónulega þá langar mig í Höllina og styðja aðeins við bakið á strákunum áður en þeir fara út. Það er líka alveg umsemjanlegt að sitja neðst við hægra hornið í kálfaútsýnisfæri ef það hvetur e-rn til að koma með, Edda? Miðinn er á 1200kall á midi.is. Jæja eruði game stelpur? Björk, það er nú eiginlega skyldumæting sko..

 

Gleðilegan janúar gott fólk

birnaoskars


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 16:35:36 / A.Hansen

!!!!AFMÆLI!!!!!

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
ELSKU SIF OKKAR
HAFÐU ÞAÐ SEM ALLRA BEST SÆTA OG LÁTTU DEKRA VIÐ ÞIG;)
:DÞÍNAR NÖLDURPÍUR:D

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 17:20:52 / UnnurLilja

hú is viþþ mí??

A hansen trendsetter kemur með allt það heitasta frá danmörku og vill bjóða okkur öllum með!
 
Analhvíttun!
 
Hver er með? 

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 31 júlí
Klukkan
Textabox
Dagsetning
28. janúar 2012
Our personal favourites
HeiðursLIMIR Nöldursins